Lögreglu tilkynnt um tvær frelsissviptingar í gær

Í gær var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um tvær frelsissviptingar. Tilkynningarnar bárust um svipað leyti, á sjötta tímanum.

Í Heiðmörk við Elliðavatn tilkynnti ungur maður um frelsissviptingu og líkamsárás. Segir hann menn hafa flutt sig þangað þar sem hann var barinn með kylfu og notað úða vopn á hann.  Þá var hann látin vaða út í vatnið og var orðinn kaldur þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang.  Maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á bráðadeild til aðhlynningar.

Annar maður tilkynnti svo um frelsissviptingu og rán. Maðurinn var að aka í Borgartúni er tvær manneskjur settust inn í bíl hans,  kona í framsæti og maður í aftursæti.  Maðurinn í aftursætinu mun hafa tekið upp eggvopn og hótað manninum.  Konan fór síðan úr bifreið hans og  var manninum sagt að aka á eftir bifreið konunnar. Óku þau í Grafarholtið þar sem maðurinn var þvingaður til að taka út pening úr hraðbanka. Eftir það var manninum sagt að aka að heimili sínu, þar sem ofbeldismaðurinn fylgdi honum inn og stal lyfjum og fleiru. Er þeir voru á útleið aftur mun maðurinn hafa náð að loka útihurðinni á ofbeldismanninn og hringdi hann síðan í lögreglu. 

Bæði málin eru í rannsókn.