Fjórtán ára unglingur varð fyrir fólskulegri árás í síðustu viku af hópi unglinga. Árásin var tekin upp á myndskeið og hefur það verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Drengurinn varð einnig fyrir árás á síðasta ári og hefur faðir hans kært ofbeldið til lögreglu. Hann glímir enn við eftirköst vegna árásar sem hann varð fyrir í Hamraborg í Kópavogi við biðstöð Strætó. Ofbeldið var hrottalegt og enn í dag kastar drengurinn upp og er með höfuðverk.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með málið til rannsóknar og óskar eftir aðstoð lesenda. Í skeyti lögreglu segir:
„ [drengurinn var] fluttur á slysadeild til aðhlynningar, en um grófa árás var að ræða. Við rannsókn málsins er m.a. stuðst við myndefni af árásinni.“
Þá segir enn fremur:
„Þeir sem urðu vitni að árásinni, eða búa yfir vitneskju henni tengdri, eru beðnir um að hafa samband við lögreglu, en upplýsingum má koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið [email protected]“
Sigurður Hólm Gunnarsson, forstöðumaður á skammtímaheimili fyrir unglinga varð vitni að því á síðasta ári þegar ráðist var á sama dreng en þá voru sumir sem réðust á drenginn vopnaðir hnúajárnum. Sú árás átti sér stað um miðjan dag við verslunarkjarna í Grafarvogi. Sigurður segir að það virðist vera í tísku að ráðast á unglinga og taka ofbeldið upp á síma.