Lögregla varar við svikahröppum - bjóða fólki að malbika innkeyrslur og plön ódýrt

Lögreglan á Norðurlandi eystra varar við svikahröppum sem segjast vera verktakar og bjóða fólki að þeir malbiki innkeyrslu og plön gegn vægu gjaldi en lögreglan telur að þarna séu svikahrappar á ferðinni. Í tilkynningu frá lögreglu segir:

„Nú var okkur að berast ábending um grunsamlegt hátterni, þar sem við teljum að verið sé að reyna að svíkja fé út úr fólki. Samkvæmt ábendingunni er um að ræða enskumælandi menn, sem segjast vera verktakar við malbikun. Þeir segist eiga afgangs malbik og bjóða fólki að malbika innkeyrslur eða plön gegn hagstæðu gjaldi.

Við viljum beina því til ykkar að ef þið fáið slík tilboð að hafa varann á og gá að því að það sé ekki verið að svíkja ykkur. Við tökum fram að enn hefur ekki orðið vart við þessa ,,verktaka“ á Norðurlandi en vildum gjarnan fá að vita af því ef fólk fær tilboð af þessu tagi.“