Lilja: „samfélagið okkar er að ganga í gegnum vitundarvakningu um málefni sem tengjast kynferðislegri áreitni“

Lög um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, sem byggja á tillögum starfshóps mennta- og menningarmálaráðherra, um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi voru nýlega samþykkt á Alþingi. Lögin heimila ráðherra að fela þriðja aðila að sinna hlutverki samskiptaráðgjafa og á þeim grundvelli var ráðist í útboð á þjónustunni. Þrír aðilar sóttust eftir því að annast ráðgjöfina og að loknu formlegu mati var Domus Mentis – Geðheilsustöð talin hæfust. Í dag var því skrifað undir samstarfssamning ráðuneytisins og Domus Mentis.

Samskiptaráðgjafanum er meðal annars ætlað að leiðbeina einstaklingum sem til hans leita vegna atvika eða misgerða sem orðið hafa í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi sem varða til dæmis einelti, ofbeldi eða kynbundna eða kynferðislega áreitni. Þá mun ráðgjafinn einnig veita íþrótta- og æskulýðsfélögum og -samtökum fræðslu og ráðgjöf.

„Það er afar mikilvægt að tryggja framvindu þessa máls og ánægjulegt að við getum með markvissari hætti en áður stuðlað að auknu öryggi iðkenda. Samfélagið okkar er að ganga í gegnum vitundarvakningu um málefni sem tengjast kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun. Það er okkar markmið að tryggja að allir njóti verndar í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

Fyrirhugað er að ráðið verði í stöðu samskiptaráðgjafans á næstunni og viðkomandi hefji formlega störf í næsta mánuði. Þá er einnig ráðgert að opnaður verði fræðsluvefur um hlutverk ráðgjafans og verksvið.