„líf mitt væri afar frábrugðið ef ég hefði fæðst í landi þar sem ómögulegt væri að vera opinberlega samkynhneigður ráðherra“

„Ég er meðvitaður um að líf mitt væri afar frábrugðið því sem er ef ég hefði fæðst í landi þar sem réttindi hinsegin fólks eru þverbrotin og ómögulegt væri t.d. að vera opinberlega samkynhneigður ráðherra.“

Þetta er meðal þess sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, segir í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Í greininni, sem ber titilinn „Ég er eins og ég er,“ fjallar hann um réttindabaráttu hinsegin fólks, en sem kunnugt er standa Hinsegin dagar nú yfir.

Guðmundur Ingi bendir á að í ár eru 50 ár síðan Stonewall uppreisnin átti sér stað við Stonewall barinn í New York. Þessi uppreisn er sögð marka upphafið að kraftmikilli réttindabaráttu hinsegin fólks.

„Lögreglan gerði reglulega rassíu á þessum vinsæla bar þar sem hinsegin fólk gat dansað saman óáreitt. Í þetta sinn var lögreglan hins vegar borin ofurliði – fólk fékk nóg og fjöldinn reis upp gegn vanvirðingu, yfirgangi og óréttlæti. Átök stóðu heila helgi og nokkur þúsund manns tóku þátt. Máttur samstöðunnar var virkjaður og þá varð ekki aftur snúið,“ rifjar hann upp.

Guðmundur Ingi segir að í ár standi Ísland einnig á tímamótum. „Um leið eru tuttugu ár liðin frá því að á Íslandi fóru fyrst fram hátíðahöldin sem í dag nefnast Hinsegin dagar og ná hámarki með Gleðigöngunni. Sá mikli fjöldi fólks sem nú fagnar fjölbreytileikanum á þessari litríku hátíð sýnir þá ótrúlegu viðhorfsbreytingu sem orðið hefur hér á landi á fáeinum árum og áratugum.“

Hann segist þakklátur fyrir að hafa nær aldrei mætt mótlæti sökum kynhneigðar sinnar en segir þó að fordóma í garð hinsegin fólks sé enn að finna á Íslandi. Sögur fólksins séu jafn margar og fólkið er margt.

„Samkvæmt nýrri óformlegri könnun sem unnin var á vegum Hinsegin daga, um málefni hinsegin fólks á íslenskum vinnumarkaði, telja 15% þeirra sem svöruðu að þau hafi færri tæki­færi á ­vinnu­markaði sam­an­borið við þau sem ekki eru hinseg­in. Nærri þriðjung­ur hinseg­in fólks upp­lif­ir óþægi­leg­ar og nær­göng­ul­ar spurn­ing­ar frá sam­starfs­fólki og stjórn­end­um á vinnustað sín­um, svo sem tengd­ar kyn­lífi, kyn­fær­um og hjú­skap­ar­stöðu,“ segir Guðmundur Ingi og rifjar upp að í fyrra hafi verið samþykkt lög um jafna meðferð á vinnumarkaði, sem feli í sér mikla réttarbót.

Hann er einnig ánægður með nýsamþykkt lagafrumvarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um kynrænt sjálfræði, sem feli í sér mikilvægar breytingar fyrir réttarstöðu hinsegin fólk á Íslandi.

Gleðigangan mun fara fram á laugardaginn og segir Guðmundur Ingi að þar muni þakklæti vera honum efst í huga.

„Í Gleðigöngunni á laugardag ætla ég að hugsa til fólks um allan heim sem berst fyrir því að lifa lífinu á sínum eigin forsendum. Ég er meðvitaður um að líf mitt væri afar frábrugðið því sem er ef ég hefði fæðst í landi þar sem réttindi hinsegin fólks eru þverbrotin og ómögulegt væri t.d. að vera opinberlega samkynhneigður ráðherra. Í göngunni ætla ég líka að hugsa með þakklæti til þeirra sem hafa í gegnum árin tryggt réttarstöðu hinsegin fólks og allra hetjanna sem vörðuðu veginn.“