Leki virðist vera komin upp á ný í vesturbyggingu Fossvogsskóla en fyrir ári síðan var farið í úttekt á húsnæðinu eftir að nemendur fundu til óþæginda og var ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir síðastliðinn mars. Endurbæturnar kostuðu Reykjavíkurborg hátt í hálfan milljarð en greint var frá málinu í Fréttablaðinu í dag.
Magnea Árnadóttir, foreldri barns við Fossvogsskóla, greindi frá því að ekki hafði verið gert við allar skemmdir og að nýjar skemmdir væru að myndast. Foreldrunum hafi verið lofað að skemmdirnar yrðu lagaðar en svo reyndist ekki raunin. „Staðan var svo alvarleg og við treystum því að það yrði allt lagað. Síðan eru börn aftur að veikjast og þessar skemmdir enn til staðar.“
Svara ekki tölvupóstum
Hún segir engin svör fást hjá Reykjavíkurborg þrátt fyrir að fleiri börn hafi verið að veikjast og segir hún að hagsmunum barnanna sé ekki gætt. Reykjavíkurborg svarar ekki tölvupóstum frá okkur og virðist borgin ætla að þegja þetta af sér.“
„Það er mjög alvarlegt að skólinn leki þrátt fyrir að búið sé að eyða nærri hálfum milljarði í viðgerðir. Húsnæðið liggur greinilega enn undir skemmdum og ég set stórt spurningarmerki við verkferla Reykjavíkurborgar,“ sagði Valgerður Sigurðardóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, um málið og bætir við að hún muni fylgja málinu eftir.