Meirihluti skóla- og frístundaráðs samþykkti á fundi sínum í dag að breyta opnunartíma leikskóla borgarinnar frá og með 1. apríl næstkomandi þannig að almennur opnunartími verði frá kl. 07:30 til 16:30. Með þessari breytingu styttist opnunartími leikskólanna um hálfa klukkustund en undanfarin ár hefur þeim verið lokað kl. 17.00. Jafnframt er tiltekið í breyttum reglum um leikskólaþjónustu að börn geti að hámarki dvalið í leikskólanum í níu klukkustundir á dag.
Fyrirhuguð breyting byggir á tillögu stýrihóps um umbætur og skipulag leikskólastarfs en í honum sitja meðal annars kjörnir fulltrúar og fulltrúar leikskólastjóra og leikskólakennara. Í tilkynningunni frá Reykjavíkurborg um málið er sagt að á undanförnum árum hafi dvalartími barna stöðugt lengst samhliða fækkun á fagfólki, sem ekki síst má rekja til minni aðsóknar í leikskólakennaranám undanfarinn áratug. Stýrihópurinn telur að stytting opnunartíma muni draga úr álagi á börn, stjórnendur og aðra starfsmenn og styrkja faglegt starf þar sem skipulag daglegs starf og mönnun leikskólans verði einfaldari.
Gefinn verður aðlögunartími að breytingunum sem munu taka gildi 1. apríl 2020. Foreldrum og forsjáraðilum með gildandi dvalarsamninga til kl. 16:45 eða 17:00 er heimilt að sækja um lengri aðlögunarfrest eða til 1. ágúst 2020 vegna sérstakra aðstæðna. Gert er ráð fyrir að þessi breyting á opnunartíma leikskólanna taki gildi eftir samþykkt borgarráðs.