Í gærmorgun hleypti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra af stokknum árlegu eldvarnarátaki og sýndi hún meðal annars fimi sína þegar hún slökkti elda á skólalóð Kópavogsskóla.
Morgunblaðið greinir frá því að Katrín hafi eitt sinn þurft að kalla til slökkviliðs eftir að kviknað hafði í pottum í eldhúsi hennar þegar hún var að sjóða snuð.
„Ég hef verið sérstaklega passasöm síðan og það sem við vorum að læra í dag [í gær] var líka mikilvægt fyrir mig því það þurfa allir að fara yfir þetta reglulega á sínum heimilum. Hvort eldvarnir séu í lagi því þetta getur gerst á svipstundu,“ segir Katrín í samtali við mbl.is.
Í átakinu er farið yfir helstu atriði eldvarna á heimilinu með börnum en reynslan sýnir að fræðslufundir með börnunum eru áhrifarík leið til þess að fá börn og foreldra til þess að efla eldvarnir heima fyrir.