Koparinn hefur undanfarið verðið að koma sterkur inn á heimilin og margir hönnuðir hafa lagt ryðfría stálið, krómið og fægða nikkelið til hliðar í bili. Það var áberandi á nýliðnu ári og virðist koparinn koma sterkur inn á nýju ári, 2020.
Það kemur skemmtilega á óvart hvað messing eða koparinn er hlýr og fíngerður valkostur til móts við stálið, krómið eða nikkelið og kallar ekki síður fram glæsileika til að mynda eins og inni á baðherbergjum.
Dimmir og skaplyndir litir hafa líka átt sterka endurkomu á vettvangi innanhússhönnunar undanfarið.