Nokkur fjöldi Kínverja í tveimur hópum keyptu allar öndurgrímur, níutíu talsins, sem var að finna í Bykó í Breiddinni í Kópavogi. Þetta staðfesti Kristinn Jónsson, deildarstjóri Byko, í samtali við Fréttablaðið. Kristni skilst að annar hópurinn hafi verið frá Wuhan-héraði þar sem hin alræmda kórónaveira á upptök sín. Þess má geta að Wuhan er vinabær Kópavogs og hefur verið síðan 2007. Hefur hópur fólks frá Wuhan í tvígang sótt bæjarfélagið heim, árin 2013 og svo aftur árið 2017.
Kristinn deildarstjóri í Byko sagði í samtali við vef Fréttablaðsins að hópurinn hafi keypt grímur að verðmæti þrjátíu þúsund króna.
„Það var gert áhlaup hérna í gær. að komu tveir hópar sem voru að leita sér að öndunargrímum og þeir bara keyptu hér allt sem við áttum til af þessu.“
Kristinn segir að honum hafi verið tjáð að annar hópurinn hafi verið frá Wuhan héraði. Hann bætir við:
„Þau voru víst á leiðinni heim aftur. Þetta voru ekki nema fjórir fimm aðilar í hvorum hóp, þannig þau voru bara að hamstra.“
Ef rétt er að ferðamennirnir hafi verið frá Wuhan er ljóst að þeir hafi haldið tryggð við Kópavog og verslað í heimabyggð en eins og kemur fram í Fréttablaðinu í dag eru Kópavogur og Wuhan vinabæir. Fulltrúar bæjarstjórnar Kópavogs fóru síðast í heimsókn til Wuhan árið 2008 og fulltrúar kínverska héraðsins komið til Kópavogs 2013 og 2018. Ármann bæjarstjóri Kópavogs hafði þetta að segja við Fréttablaðið:
„Ég hef að sjálfsögðu hugsað til þeirra í ljósi þess að þetta er okkar vinabær. Vonandi tekst kínverskum stjórnvöldum að ná tökum á þessari skæðu pest.“
Hér má lesa frétt Fréttablaðsins í heild sinni.