Kaup og sala fisk seafood á bréfum í brimi: markaðsvirði brims yfir 70 milljarða kr.

Kaup Fisk Seafood á yfir 10 prósenta hlut í Brimi síðustu vikurnar, m.a. af Gildi lífeyrissjóði, og sala bréfanna til Útgerðarfélags Reykjavíkur með verulegum hagnaði hefur verið mjög í umræðunni síðustu daga. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, er meirihlutaeigandi í Útgerðarfélagi Reykjavíkur.  Greint var frá viðskiptunum sl. mánudag og áætlaði Fréttablaðið í  morgun að hagnaður Fisk Seafood væri í kringum 1,3 milljarðar kr. af þessum viðskiptum. Hér má sjá hvernig gengi hlutabréfa í Brimi var við lokun markaða sl. mánudag en markaðsvirðið fór þá yfir 70 milljarða króna.