„Ég ætla að leggja það til við forsætisráðherra að refsing þín fyrir þessar áætlanir Áslaug Arna verði sú að þú sért skikkuð til þess að vinna eina viku á Vogi, sitja þar fundi og anda að þér angistinni hyldjúpu sem fylgir þeim sem eru að takast á við alvarlegan alkóhólisma og aðra fíknisjúkdóma.“
„Áslaug Arna það eru ein af forréttindum okkar Íslendinga að hafa dómsmálaráðherra sem er 29 ára kona. Það er kýrskýrt að það þarf sérstakan einstakling fyrir mannkosta sakir til þess að komast alla leið í þann stól fyrir þrítugt og vera í þokkabót af því kyninu sem er sífellt verið að svindla á.“
Þetta segir Kári Stefánsson í opnu bréfi til Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. Þar gagnrýni Kári Áslaugu harðlega vegna frumvarps ráðherrans um leyfi á sölu áfengis í netverslanir. Kári segir að línulegt samband sé á milli aðgengis að áfengi og neyslu þess. Því auðveldara sem aðgengið er, því meiri verður neyslan og þá enn fleir vandamál sem koma upp í samfélaginu.
„Ég held til dæmis að það séu mjög alvarleg mistök af dómsmálaráðherra að leggjast í víking til þess að reyna að auka aðgengi að áfengi í landinu.“
Þá bendir Kári á að ofbeldisglæpi, umferðarslys og heimilisofbeldi megi oft rekja til áfengisneyslu og Áslaug Arna sé að auka dreifingu á skaðvaldi.
„Þú ert svo ung að þú hefur sjálfsagt ekki orðið vitni að því hvernig áfengi hefur tilhneigingu til þess að leysa upp fjölskyldur og skilja börn eftir lömuð af sorg af því þau hafa ekki hugmynd um hvað er að gerast,“ segir Kári og bætir við:
„Í stað þess að gegna skyldum þínum hyggstu nýta þér embættið sem fylgja þessar skyldur til þess að auka líkur á alvarlegum umferðarslysum, ofbeldisglæpum og heimilisofbeldi. Þetta eru mistök sem ættu að flokkast sem alvarleg embættisafglöp, nema þetta sé einfaldlega glæpur. Það samrýmist engan vegin embætti dómsmálaráðherra að leggja fram frumvörp til laga sem auka líkur á því að lög séu brotin. Þess vegna verður þú annað hvort að hætta við frumvörpin eða finna þér nýja vinnu.“
Þá segir Kári að lokum:
„Ég ætla að leggja það til við forsætisráðherra að refsing þín fyrir þessar áætlanir Áslaug Arna verði sú að þú sért skikkuð til þess að vinna eina viku á Vogi, sitja þar fundi og anda að þér angistinni hyldjúpu sem fylgir þeim sem eru að takast á við alvarlegan alkóhólisma og aðra fíknisjúkdóma.“