Jón Örn Marinsson, sem þekktur er fyrir beitta pistla, m.a. í Fréttablaðið þakkar Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra fyrir að bjarga. Jón Örn segir á midjan.is
„Úr því að ég á heima á Íslandi, dýrasta landi í heimi að sögn Business Insider, hlýt ég að vera þeim Katrínu og Bjarna, besta vin, ævinlega þakklátur fyrir að þau skuli hafa hækkað greiðslur Tryggingastofnunar til eftirlaunafólks um 3% um nýliðin áramót.“
Líkt og greint var frá fyrr í dag er ljóst að Katrín og Bjarni stýra dýrasta land í heimi. Það kom fram á vef RÚV sem vitnaði í Business Insider. Greina má nokkra kaldhæðni í tón Jóns en hann segir:
„Katrín má vera að sönnu stolt af því hvers vel henni gengur að efna sín gömlu fyrirheit um að bæta svo um munar kjör eftirlaunafólks.“
Í tilfelli Jóns hækkar mánaðarleg greiðsla TR um nær því 800 krónur.
„Þessar 800 kr. duga einmitt fyrir mánaðarlegri hækkun á vatns- og frárennslisgreiðslu minni til Veitna svo að segja má að ég geti verið áhyggjulaus fjárhagsins vegna út þetta ár,“ segir Jón og bætir við að lokum:
Trúlega er sagan um þessar 800 kr. einmitt gott dæmi um „jafnvægið“ sem Bjarni, besti vin, talaði um á Alþingi á mánudag.