Myndir af íslensku landslagi lentu í fyrsta sæti í alþjóðlegri ljósmyndakeppni. Rússnenski ljósmyndarinn Oleg Ershov er maðurinn á bak við myndavélina og segist hann njóta þess að taka myndir af landslagi á Íslandi, Skotlandi og suðvesturhluta Bandaríkjanna.
„Ég finn fyrir mikilli orku þegar ég er á vettvangi við dagrenningu,“ sagði Ershov.
Ein af myndum hans var tekin við Bláfellsá.
Önnur ljósmyndin var af Háafossi, innst í Þjórsárdal.
Sú þriðja var tekin við Kerlingarfjöll.