Ída jónasdóttir er látin

Ída Jónasdóttir Herman er látin 94 ára að aldri. Ída sem var fyrst íslenskra kvenna til þess að fá leyfi til þess að giftast bandarískum hermanni, Delbert Herman, missti íslenskan ríkisborgararétt sinn þegar hún flutti með eiginmanni sínum til Bandaríkjanna við lok seinni heimstyrjaldar.

\"\"

Morgunblaðið greindi frá andláti Ídu. Samkvæmt gildandi lögum á þeim tíma sem Ída flutti til Bandaríkjanna gerði það að verkum að hún missti íslenskan ríkisborgararétt sinn og í kjölfarið gerði hún það að markmiði sínu að endurheimta hann. Fékk hún það samþykkt í sumar þegar Alþingi veitti henni ríkisborgararétt sinn aftur og fagnaði hún honum hér á landi og bauð til veislu á Hressingarskálanum.