Á laugardaginn, 7. desember, verða Evrópsku kvikmyndaverðlaunin afhent í 32. sinn og fer verðlaunahátíðin fram í Berlín. Ingvar E. Sigurðsson er tilnefndur sem besti evrópski leikarinn fyrir leik sinn í mynd Hlyns Pálmasonar, Hvítur hvítur Dagur. Í tilefni hátíðarinnar bauð María Erla Marelsdóttir, sendiherra Íslands í Þýskalandi til móttöku til heiðurs Ingvari þar sem tilnefningunni var fagnað.
Verðlaunahátíðin, sem segja má að séu hin evrópsku Óskarsverðlaun, fer fram á hverju ári. Annað hvort ár er hún haldin í Berlín, þar sem höfuðstöðvar Evrópsku kvikmyndaakademíunnar eru og hitt árið ferðast hátíðin á milli borga í Evrópu. Á næsta ári verður hátíðin haldin í fyrsta sinn á Íslandi og fer hún fram í Hörpu þann 12.12 2020. Undirbúningur er þegar hafinn, enda er þetta umfangsmikið verkefni sem unnið er í samstarfi íslenska ríkisins, Reykjavíkurborgar og Evrópsku kvikmyndaakademíunnar.
Það að Reykjavík hafi verið valin sem gestgjafi hátíðarinnar sýnir fyrst og fremst styrk íslenskrar kvikmyndagerðar sem hlotið hefur verðskuldaðar viðurkenningar á síðustu árum og áratugum. Hátíðin vekur jafnan alþjóðlega athygli, er sjónvarpað beint og streymt á netinu og því ljóst að Ísland verður í kastljósi evrópska kvikmyndaheimsins að ári.
Icelandair hefur um árabil stutt dyggilega við íslenska menningu og listir og hefur náðst samkomulag á milli EFA 2020 og Icelandair um að fyrirtækið verði einn af bakhjörlum Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Reykjavík árið 2020. Samkomulag þess efnis var undirritað í bústað sendiherra Íslands í Berlín af Örnu Schram, sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar og formanni stjórnar EFA 2020, og Gísla S. Brynjólfssyni, markaðsstjóra Icelandair. Viðstaddir undirritunina voru m.a. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og Ingvar E. Sigurðsson.