Hvernig fannst þér skaupið 2019? taktu þátt í könnun

Áramótaskaupi Sjónvarpsins lauk nú rétt í þessu. Líkt og venjulega kenndi þar ýmissa grasa. Þar var gert grín að Samherja, umhverfisvernd, pólitík og voru þjóðþekktir einstaklingar dregnir sundur og saman í háði líkt og áður.

Höfundar skaupsins í ár eru Dóra Jóhannsdóttir, Hugleikur Dagsson, Jakob Birgisson, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, Reynir Lyngdal, Sævar Sigurgeirsson, Vala Kristín Eiríksdóttir og Þorsteinn Guðmundsson. Leikstjóri er Reynir Lyngdal.

Eins og áður, þá eru skiptar skoðanir um Skaupið. Á Twitter hefur Skaupið fengið mikið hrós en verið meira gagnrýnt á Facebook. En við spyrjum, hvað finnst lesendum Fréttablaðsins og Hringbrautar?

Gefðu áramótaskaupinu einkunn með því að taka þátt í könnun. Niðurstaðan verður svo birt á morgun: