Pakkhús Hróksins við Geirsgötu 11 lokar um áramótin. Eignin seld malasískum fjárfesti. Hrafn Jökulsson: Vona að Hrókurinn verði ekki lengi á hrakhólum. Dreymir um að byggja upp Grænlandssetur í tengslum við starf Hróksins og Kalak.
Skákfélagið Hrókurinn stendur í stórræðum á aðventunni. Á miðvikudag fer leiðangur til Nuuk með skák og sirkusveislu í farangrinum og skömmu fyrir jól fer Stekkjarstaur að vanda til Kulusuk á vegum Hróksins, Kalak og Air Iceland Connect með jólagjafir handa öllum börnunum í þorpinu. Alls hefur Hrókurinn því heimsótt Grænland níu sinnum á þessu ári.
Dagur borgarstjóri spreytir sig gegn Róbert í Pakkhúsinu í maraþoni í þágu sýrlenskra barna.
Starfið á Grænlandi er í blóma, en það eru blikur á lofti á íslenska heimavellinum: Um áramótin missir Hrókurinn húsnæði sitt í vöruskemmunni að Geirsgötu 11. Þar hefur Pakkhús Hróksins iðað af lífi síðustu árin.
,,Þarna höfum við verið með frábæra aðstöðu fyrir fatasöfnun Hróksins, en Pakkhúsið hefur líka verið lifandi vettvangur fyrir allskyns viðburði: skákmót, maraþon, málþing, hátíðir, jafnt í nafni Hróksins og Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands. Við höfum komið upp vísi að Grænlandssetri, með myndum og munum. Hingað hafa ótal útlendingar komið að fengið fyrstu fræðslu um Grænland -- það gildir reyndar um marga Íslendinga líka,\" segir Hrafn Jökulsson.
Glöð grænlensk börn á hátíð í Pakkhúsi Hróksins við Reyjavíkurhöfn.
Hann segir Hróksliða hafa skimað eftir nýju húsnæði, eftir að Geirsgata 11 skipti um eigendur fyrr á árinu.
,,Öllu er afmörkuð stund. Á sínum tíma hringdi ég í Guðmund Kristjánsson í Brim og falaðist eftir húsnæðinu í tvær vikur eða svo. Okkur hafði þá borist beiðni frá vinkonu okkar í Ittoqqortoormiit, afskekktasta þorpi Grænlands, um að senda nokkra kassa af fötum fyrir börn og ungmenni. Við fengum lyklana að Geirsgötunni daginn eftir og höfum verið hér síðan í góðu boði Guðmundar. Nú er byggingin komin í eigu malasískra kaupsýslumanna, og við verðum víst að rýma um áramótin.\"
Henny Nielssen er sannkallaður herforingi í Hróknum og Kalak. Hefur safnað og pakkað fatnaði í Pakkhúsinu í fimm ár.
Hrafn kveðst eiga sér þann draum að byggja upp Grænlandssetur á nýjum stað, í tengslum við starfsemi Hróksins.
,,Okkur leggst eitthvað til því við eigum marga góða að. Skemmtilegast væri að búa til dálítið Grænlandssetur, þar sem við gætum líka tekið við glaðningi til grænlenskra barna, og verið með grunnstarfsemi Hróksins og Kalak. Við erum opin fyrir öllu þegar kemur að stærð eða staðsetningu, og ætlum að vanda valið. Ég er þakklátur fyrir allar tillögur og vona að Hrókurinn verði ekki lengi á hrakhólum.\"
Hrafn, Guðni forseti, Bergsteinn í UNICEF og Róbert eftir velheppnað maraþon 2018 í þágu barna í Jemen.
Og það er nóg framundan 2020. Stefnt er að hátíðum jafnt á vesturströndinni sem Suður-Grænlandi, en sérstök áhersla lögð á Austur-Grænland.
,,Við munum leggja mikla áherslu á að rækta tengsl við nágranna okkar á Austur-Grænlandi. Við vorum nýverið á ferð í Tasiilaq og töluðum við fjölmarga. Tasiilaq, sem er 2000 manna höfuðstaður Austur-Grænlands, komst í fréttirnar í sumar þegar sýnd var heimildarmyndin Týndu börnin í Tasiilaq. Þarna munum við m.a. styðja við bakið á Rauða kross deildinni í bænum, fósturheimilinu Princesses Margarethes Börnehjem, og dagheimili fyrir börn. Við eigum að stórauka samskipti okkar við Grænland, með sérstakri áherslu á austurströndina.\"