Nýsköpun er helsta áskorun framleiðslugreinanna á Íslandi, ásamt lausnum í loftslagsmálum, að því er fram kom á framleiðsluþingi Samtaka iðnaðarins í Hörpu á miðvikudag í síðustu viku, en sérstakur sjónvarpsþáttur um þingið verður frumsýndur á Hringbraut í kvöld.
Framleiðslufyrirtækin í landinu eru á þriðja þúsund og starfsmenn þeirra hartnær 20 þúsund, svo mikilvægi iðnaðargeirans í íslesku atvinnulífi sé áréttaður. En það eru ógnanir á markaði; 88% stjórnenda framleiðslufyrirtækja ætla að grípa til hagræðingaraðgerða á þessu ári, samkvæmt nýrri könnun sem kynnt var á þinginu, sem kann að merkja uppsagnir í mörgum tilvikum, en hljóðið í þessum forsvarsmönnum er nokkuð þungt; gjöld og álögur í fyrirtækjarekstri eru að sliga starfsemina, segja þeir margir.
Við þessu vilja stjórnendur iðnfyrirtækja bregðast - og það var efni frameiðsluþingsins í ár eins og rækilega kemur fram í viðtölum þáttarins í kvöld, en þar standa fyrir svörum Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi, Einar Snorri Magnússon, forstjóri CCEP á Íslandi, Ingólfur Guðmundsson hjá CRI og Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir, stjórnarformaður Vírnets Límtré.
Það er bæði hollt og gott að heyra hljóðið í þessum stjórnendum í þætti kvöldsins.