„Það er ekkert í gulri viðvörun sem gefur til kynna að það skuli afdráttarlaust aflýsa öllum ferðum, þótt vissulega sé tekið fram að slík veður krefjist árvekni við skipulagningu ferða milli landshluta. Við vorum meðvitaðir um veðrið og ætluðum að vera farnir af svæðinu áður en það kæmi vont veður.“
Þetta segir Haukur Herbertsson, rekstrarstjóri Mountaineers of Iceland, í ítarlegu viðtali í Morgunblaðinu í dag um ástæðu þess að fyrirtækið tók ákvörðun um að halda af stað með hóp 39 ferðamanna í vélsleðaferð við Langjökul þann 7. janúar síðast liðinn.
Ekkert sem benti til þess að björgunaraðgerðir yrðu erfiðar
Ætlun ferðarinnar var að aka sleðum frá bækistöð fyrirtækisins í Geldingafelli að íshelli við jökulbrún Langjökuls, dvelja þar í fimmtán mínútur og aka svo sömu leið til baka.
Gul viðvörun hafði verið gefin út af Veðurstofu Íslands og átti veðrið að verða mjög slæmt upp úr klukkan þrjú síðdegis. Vegna ófærðar náði hópurinn ekki til baka og þurfti aðstoð björgunarsveitar til þess að bjarga þeim.
Haukur segir fyrirtækið taka gula aðvörun alvarlega en bendir á að ekkert í aðdragandanum hafi gefið tilefni til þess að ætla að björgunaraðgerðir yrðu erfiðar á svæðinu. Ferðin hafi átt að taka 75 mínútur og töldu þeir sig hafa nægan tíma til þess að ljúka henni áður en veðrið skylli á.
Upphaf ferðarinnar tafðist um tuttugu mínútur og segir Haukur að hópurinn hafi tekið því rólega áður en þau lögðu af stað. Viðkoman í íshellinum hafi orðið lengri en áformað var og að klukkan hafi verið orðin 15:20 þegar einn fjögurra leiðsögumannanna hafi látið vita að sleðaferðin hefði tekið lengri tíma en ætlað var.
„Á leiðinni til baka óskuðum við eftir því að þau kæmu sér til baka sem allra, allra fyrst. Við vissum að veðrið væri á leiðinni,“ segir Haukur og bendir á að aðalleiðsögumaður hópsins hafi 15 ára reynslu af leiðsögn á svæðinu.
Rétt fyrir klukkan fjögur hafi félagið sett af stað viðbragðsáætlanir. Snjótroðari sem einn leiðsögumaður ferðarinnar sótti bilaði um hálf sex leitið og var fólkið orðið kalt og áhyggjufullt að bíða. Á þessum tíma var orðið dimmt úti og hætti leiðsögumaðurinn ekki á að ganga í myrkrinu og voru því þrír leiðsögumenn eftir með hópnum.
Of mikið gert úr viðvörun Veðurstofu
Haukur segir ökumenn fjögurra jeppa hafa átt að keyra að hópnum en að fljótlega hafi þeir áttað sig á því að þeir kæmist ekki leiðar sinnar nema búið yrði að ryðja fyrir þeim með jarðýtu. Klukkan eina mínútu í átta bilaði einn jeppinn og í kjölfarið var haft samband við Neyðarlínuna.
Að hálftíma liðnum tókst að koma tveimur jeppana að hópnum og um miðnætti komst þriðji jeppinn til þeirra. Björgunarsveitarmenn tóku yfir stjórn á vettvangi fljótlega eftir þetta og var hópurinn fluttur með snjóbílum í áföngum að Geldingafelli og þaðan að fjöldahjálparstöð við Gullfoss.
Aðspurður segir Haukur að of mikið hafi verið gert úr því að Veðurstofan hafi gefið út gula viðvörun þennan dag. Samkvæmt skilgreiningu Veðurstofunnar hefur slítk veður óveruleg áhrif á samgöngur og innviði eða þjónustu.
„Við erum gjörsamlega miður okkar yfir þessu atviki. Okkur þykir mjög fyrir því að viðskiptavinir okkar hafi þurft að upplifa þetta og að þeir hafi lent í þessum vandræðum með okkur,“ segir Haukur en líklegt er að ferðamennirnir eigi rétt á bótum vegna atviksins.
Haukur telur þó að fólkið í vélsleðaferðinni hafi ekki verið í lífshættu.
„Slæm færð á heimleiðinni olli í þessu tilviki miklum töfum og er ástæðan fyrir því að hópurinn komst ekki á leiðarenda. Það var aldrei neinn týndur og það slasaðist enginn,“ segir hann.
Haukur viðurkennir að hugsanlega hefðu þeir átt að hringja fyrr eftir björgunarsveit en að fyrirtækið hafi talið sig hafa allan þann tækjabúnað og mannskap sem þyrfti til þess að koma fólkinu í öruggt skjól.
„Við töldum alltaf að við hefðum besta tækifærið til að skila fólkinu sem fyrst,“ segir Haukur en fyrirtækið vinnur nú að því að betrumbæta öryggisáætlun sína eftir athugasemdir Ferðamálastofu.