Guðni ölversson: „geta drullusokkar orðið ráðherra?“

Guðni Ölversson skrifar í dag inn á Miðjuna um orð Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra, um að peningar úr ofanflóðasjóði hafi verið notaðir til annars en byggingu snjóflóðavarnargarða. Hann segir að ofanflóðasjóður hafi verið stofnaður til þess að verja byggðir landsins gegn snjóflóðum, og spyr sig af hverju peningar úr sjóðnum hafi verið notaðir í annað:

„Ofanflóðasjóður var stofnaður í þeim tilgangi að verja byggðir landsins og íbúa þeirra, gegn snjóflóðum. Nú segir Bjarni að hluti þess fjár sem fara átti í varnargarða hafi verið notað í aðrar framkvæmdir vegna þess að, væntanlega, hafa ríkisstjórnir síðustu ára hafi talið peningunum betur varið í annað.“

Guðni er ekki par sáttur við þessa ráðstöfun:

„Þá er mín spurning sú hvort það séu ekkert annað en drullusokkar sem veljast í ráðherrastóla í stjórnarráði Íslands.“

Í ljósi þess að fjöldi mannskæðra snjóflóða hafi fallið á Íslandi síðustu fimmtíu ár finnst honum skrýtið að peningurinn hafi verið notaður í annað. Hann spyr sig hvernig umræðan væri ef einhver hefði látið lífið í snjóflóðinu á Flateyri:

„Sem betur fer varð ekkert manntjón í snjóflóðunum í vikunni. En hvað mundi maður segja um Bjarna Ben og aðra þá sem fara með fjármál þjóðarinnar ef við hefðum ekki verið svo heppin sem raun ber vitni þessa vikuna.“