Guðmundur hættir strax sem bæjarstjóri á ísafirði

„Meirihluti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar og Guðmundur Gunnarsson bæjarstjóri hafa komist að samkomulagi um starfslok Guðmundar og lætur hann af störfum nú þegar. Ástæða starfsloka er ólík sýn á verkefni á vettvangi sveitarfélagsins. Telja aðilar það sveitarfélaginu fyrir bestu að leiðir skilji.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ísafjarðarbæ. Þar segir enn fremur:

„Það mun skýrast á allra næstu dögum hvernig ráðningu á næsta bæjarstjóra verður hagað. Þangað til mun bæjarritari, sem er staðgengill bæjarstjóra, gegna starfinu. Meirihlutinn f.h. bæjarstjórnar, óskar Guðmundi velfarnaðar og þakkar honum fyrir samstarfið.“

Guðmundur vill koma á framfæri einlægum þökkum til íbúa Ísafjarðarbæjar fyrir frábærara viðtökur og ánægjulegt samstarf. Hann segir það heiður að hafa fengið tækifæri til að vinna að mikilvægum hagsmunamálum Vestfirðinga með kraftmiklu starfsfólki sveitarfélagsins.“