Fyrrverandi þingmaður varar við sölu á Íslandsbanka: „þeir vilja eignast varphænurnar“

Árni Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, varar við sölu á Íslandsbanka í aðsendri grein sem birtist í gær á midjan.is. Þar segir hann að bankinn hafi lengi verpt gulleggjum fyrir ríkissjóð og spyr hann hvort allir séu búnir að gleyma hvernig hafi farið fyrir Búnaðarbanka og Landsbankanum.

„Ósköp þótti mér dapurt, að heyra forsætisráðherra lýsa því yfir í sjónvarpi, að hún vildi selja Íslandsbanka. Þessi banki hefur lengi verpt gulleggjum fyrir ríkissjóð. Eru allir búnir að gleyma hvernig fór fyrir Búnaðarbanka og Landsbanka forðum daga,“ skrifar Árni.

„Tveir menn keyptu Búnaðarbanka á röngum forsendum. Þeir þurftu ekki að leggja fram krónu úr eigin vösum og hirtu um 90 milljónir dollara fyrir vikið. Á svipaðan hátt náðu nokkrir einstaklingar í Landsbankanna. Kaupendur þessara banka komu úr Framsóknar- og Sjálfstæðisflokki.“

Gamla helmingaskiptareglan enn í fullu gildi

Hann segir að gamla helmingaskiptareglan sé enn í fullu gildi. „Og hverjir munu kaupa Íslandsbanka og hirða öll gulleggin. Það verða fjársterkir einstaklingar, sem líklega verða handvaldir.“

Árni segir að það hafi gleymst að hlutur ríkisins í bönkunum tveimur sé eignarhlutur þjóðarinnar. „Forsætis- og fjármálaráðherra segjast ætla að nota andvirði bankanna til að efla og auka innviði lands og þjóðar. Hagnaðurinn af sölu Símans átti að fara í Landspítalann. Það fór ekki króna þangað. Peningurinn hvarf eins og dögg fyrir sólu.“

Hann segir að salan á Íslandsbanka leggist illa í sig. „Báðir hafa þessir bankar skilað stórum fjárhæðum í sameiginlegan sjóð þjóðarinnar. Fjáraflamenn sjá ofsjónum yfir því, að gulleggin bæti hag almennings. Þeir vilja eignast varphænurnar.“