Frávísunartillaga var ekki stuðningsyfirlýsing

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar í morgun var lögð fram og samþykkt frávísunartillaga vegna vilja meirihluta nefndarinnar um að Bergþór Ólason, formaður hennar, sinnti ekki formennsku lengur. Í tilkynningu frá Vinstri grænum, Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum kemur fram að frávísunartillagan hafi ekki verið stuðningsyfirlýsing við nefndarformennsku Bergþórs.

Í tilkynningunni segir að frávísunartillagan hafi einungis snúið að því að setja formann nefndarinnar af. Ekki hafi legið fyrir tillaga um nýjan formann og ríkti óvissa um hvort tillagan væri tæk.

„Formennska í umhverfis- og samgöngunefnd er hluti af samkomulagi milli meirihluta og minnihluta. Samkvæmt samkomulagi þingflokksformanna í kjölfar þingkosninga 2017 féll formennska í þremur nefndum í skaut stjórnarandstöðuflokka og formennska í fimm nefndum í skaut stjórnarflokkanna. Það er á forræði þingflokksformanna ef breyta á samkomulaginu og hafa þannig áhrif á nefndarformennsku,“ segir einnig í tilkynningunni.

Frétta­blaðið hafði greint frá því fyrir helgi að meiri­hluti nefndarinnar teldi Berg­þóri ekki stætt til áframhaldandi formannssetu í nefndinni í kjölfar Klaustursmálsins.