Ert þú undirbúinn ef slokknar á öllu og vegir verða ófærir? þessir hlutir eru mikilvægir á öllum heimilum

Óveðrið sem gengur hefur yfir landið síðustu daga hefur verið óvenju slæmt og nóg hefur verið að gera hjá björgunarsveitum landsins.

Rafmagnsleysi, mikill kuldi og jafnvel útilokun frá umheiminum vegna veðurs getur haft áhrif á líðan fólks og minnir Rauði Kross Íslands á Hjálparsímann sem er opinn allan sólarhringinn, allan ársins hring, þar sem hæg er að ræða um líðan sína við vel þjálfaða sjálfboðaliða.

Ásamt því hefur Rauði Krossinn útbúið lista með hlutum sem geta skipt sköpum til dæmis þegar rafmagnsleysi á sér stað en reynslan hefur sýnt það að vera vel undirbúin getur skipt sköpum.

„Það er gott að vita hvernig skuli bregðast við þegar slokknar á öllu, net- og símasamband dettur út eða vegir verða ófærir. Að sama skapi minnkar góður undirbúningur álag á viðbragðsaðilum t.d. björgunarsveitum,“ segir á heimasíðu Rauða Krossins.

Hér fyrir neðan er gátlisti yfir hluti sem er gott að hafa tiltæka á vísum stað sem allir fjölskyldumeðlimir geta nálgast:

  • Listi yfir mikilvæg símanúmer - Fjölskyldumeðlimir og viðbragðsaðilar, s.s. 112 og hjálparsíminn 1717
  • Kerti og eldspýtur - Ef rafmagn þrýtur er nauðsynlegt að geta tendrað ljós og kveikt upp í eldunargræjum.
  • Sterkt viðgerðarlímaband - Mjög gagnlegt í minni viðgerðir og skammtímareddingar .
  • Hreinlætisvörur - Tannbursta, bleyjur, sápu, dömubindi/túrtappa, svitalyktareyði o.s.frv.
  • Útvarp með langbylgju (upptrekt eða með rafhlöðum) - Þinn besti möguleiki á að fá upplýsingar um ástand ef sambandsleysi á sér stað.
  • Vasaljós með rafhlöðum
  • Reiðufé
  • Leikföng og spil - Nauðsynlegt fyrir börn jafnt sem fullorðna og fyrirtaks dægrastytting.
  • Vatn á flöskum eða brúsa - Hver einstaklingur notar allt að fjóra lítra á dag.
  • Teppi til að kúra saman í kuldanum - Muna að hafa nóg fyrir alla á heimilinu.
  • Matur með langt geymsluþol (dósamatur, pakkamatur, þurrmeti) - Svo er bara að borða hann í útilegum á sumrin og fylla aftur á með haustinu.
  • Vasahnífur eða fjölnota verkfæri - Nauðsynlegt í minniháttar viðgerðir.

Annað sem Rauði Krossinn segir mikilvægt að hafa í huga:

  • Skyndihjálpartaska er alltaf nauðsynleg á hvert heimili. Hana má kaupa hjá Rauða krossinum .
  • Prímus og gaskút er nauðsynlegt að eiga - það er leiðinlegra að borða dósamatinn kaldan. Þá virkar gasgrill líka.
  • Slökkvitæki
  • Hafðu nóg eldsneyti á bílnum ef hættuástand skapast - þannig geturðu hlaðið síma og fylgst með fréttum í útvarpinu ef samband er til staðar.
  • Kynntu þér staðsetningu næstu fjöldahjálparstöðvar. HÉR má finna staðsetningar á landinu.
  • Náðu í skyndihjálparappið á App Store eða Google Play. Þar er einnig kafli um neyðarvarnir.