Erfitt að hvetja krakka áfram í ólaunað starf - sturla snær: „ég vil að afreksfólk geti stundað sína vinnu en líka búið við fjárhagslegt öryggi“

Sturla Snær Snorrason er afreksíþróttamaður á skíðum sem býr meiri hluta ársins erlendis þar sem hann æfir og keppir á skíðum. Mikil umræða hefur verið í gangi meðal íþróttafólks um raunveruleika þeirra og vildi Sturla vekja athygli á því hversu erfitt það er að vera afreksmaður í íþróttum frá Íslandi.

„Á ferli mínum hef ég farið á óteljandi mót og meðal annars hlotið þann heiður að fara á ólympíuleikana og heimsmeistaramót. Ég fer að meðaltali á 5-7 æfingar í viku, aðallega á skíðum og svo þol- og styrktaræfingar með því. Ég held mig við strangt mataræði og passa uppá svefninn þar sem ég vakna yfirleitt um 6:00 leitið. Ég er í þjálfaranámi hjá ÍSÍ og læri þar af leiðandi um helgar,“ segir Sturla í færslu sinni á Facebook sem hann gaf Hringbraut góðfúslegt leyfi til þess að fjalla um.

Frá september ár hvert og þar til í maí er Sturla á stanslausum æfingum erlendis og talar hann daglega við fjölskyldu sína hérlendis í gegnum samskiptaforrit. Á sumrin starfar hann við vegmerkingar og býr heima hjá foreldrum sínum til þess að safna sér pening.

„Ég er ekki að safna fyrir íbúð, né bíl. Yfir sumarmánuðina er ég að safna fyrir því að fá að vera afreksmaður. Ég er að safna fyrir því að geta staðið mig sem landsliðsmaður Íslands á skíðum. Ég safna fyrir því að geta farið á öll stærstu mótin, sem eru víða. Ég safna fyrir skíðunum sem ég skíða á, íbúðinni sem ég leigi, bensíninu sem það kostar mig að keyra á milli móta og æfingabúða, matnum mínum og margt annað sem fylgir því að vera íþróttamaður,“ segir Sturla.

\"\"

Mynd: Sturla Snær Snorrason á heimsmeistaramótinu 2019 í Åre

Erfitt að mæla með því að börn fari í atvinnumennsku

„Ég veit ekki hvort þú vitir hver ég er, en það eru fullt af börnum á íslandi sem vita hver ég er. Börn sem æfa skíði og stefna auðvitað alltaf á að ná alla leið. Af því aðafreksfólk, í öllum íþróttagreinum á íslandi, eru fyrirmyndir þessara barna. Börn sem vita að til þess að ná langt þarf að leggja inn vinnuna og agann og þau eru algjörlega tilbúin að gera það.

\"\"

Mynd: Sturla Snær Snorrason

En það er erfitt að mæla með að þessi börn fari í atvinnumennsku miðað við stöðuna í dag, og þess vegna þarf að laga, breyta og bæta stöðu afreksfólks á íslandi afþví við viljum hvetja þessa krakka áfram án þess að naga okkur í handarbakið.“

Segir Sturla vinnuna sína alls ekki vera einsdæmi þar sem Ísland á afreks fólk í nánast öllum íþróttum.

„Við erum sterk, dugleg og með yfirnáttúrulegan drifkraft. Það sem við gerum er ekkert annað en stöðug vinna. Vinna sem nær yfir allar helgar og frídaga, vinna með enga stimpilklukku. Vinna sem krefst mikilla fórna. Krónískt líkamlegt starf sem reynir samt sem áður mest á heilann.

Þetta starf er ekki launað sem gerir starfið mun erfiðara en það er og sérstaklega þar sem íslenskir íþróttamenn þurfa meira og minna að vera búsettir erlendis til að halda sér samkeppnishæfum,“ segir hann og tekur það fram að sem afreksíþróttamaður fái hann styrk frá aðildarsamböndum sínum.

„Styrki sem eru lífsnauðsynlegir og ná yfir æfingagjöld og flug. Án þeirra væri engin von.
Fyrir utan þá styrki, er úr fáum sponsum að taka og fyrir þær sakir er því miður alltof mikið af afreksfólki að yfirgefa afrekslestina.

Hola í kerfinu 

„Vert er að benda á að margir af liðsfélögum mínum hafa möguleikann á því að skíða fyrir lögreglu, herinn eða þess háttar í sínu landi og fá um 2000 evrur á mánuði sem eru um 276.000 kr ísl. Það munar um minna þegar maður starfar í þágu landsins síns. Kannski ætti að skoða að taka upp svipað kerfi hér á landi. Því að því miður felst okkar vinna ekki í því að taka myndir og pósta á samfélagsmiðla, þó svo við reynum. Ekki misskilja mig, ég virði samfélagsmiðla stjörnur og þeirra vinnu og vona að þessir aðilar taki starfi sínu alvarlega sem fyrirmyndir,“ segir Sturla.

\"\"

Mynd: Sturla Snær Snorrason

„Við erum með listamannalaun, atvinnuleysisbætur og í raun kerfi sem sér til þess að hinn almenni Íslendingur sé aldrei launalaus. En einhverra hluta vegna er hola í þessu kerfi og íþróttafólk margt hvert í þeirri holu, launalaust.

Ég vil halda áfram að vinna að mínum markmiðum sem eru samt ekki bara mín eigin markmið heldur líka hjá allri skíðaíþróttinni á Íslandi. Þetta er raunveruleiki sem margir íslenskir atvinnu íþróttamenn og konur búa við. Ég vil reyna að ryðja leiðina fyrir komandi afreksfólk. Ég vil sjá að afreksfólk geti stundað sína vinnu en líka búið við ákveðið fjárhagslegt öryggi.“

Hægt er að fylgjast með Sturlu á Instagram undir notandanafninu: sturlasnaer94