Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, hrósar framgöngu Daníels Jakobssonar, fyrrverandi bæjarstjóra á Ísafirði og Örnu Láru Jónsdóttur, varaþingmanns Samfylkingarinnar, í hástert í pistli á Facebook síðunni sinni. Þar lætur hann fylgja með mynd af gamalli færslu sjónvarpsmannsins Gísla Marteins Baldurssonar af Twitter.
„Ég er stoltur af framgöngu Daniel Jakobsson, Arna Lára Jónsdóttir og þeirra góða fólks fyrir vestan sem þrátt fyrir þunga og erfiði tekst að minna á þá mildi sem fylgir snjóflóðavörnum. Það þarf æðruleysi til að geta fært þökk í þunganum,“ skrifar Elliði.
„Átakanlegir atburðir á vestfjörðum sýna svo ekki verður um villst að það þarf hlýtt hjarta og næmi á þær tilfinningar sem hrærast með fólki í þessum aðstæðum þegar um þessi mál er fjallað,“ segir hann.
„Það rifjar upp að stundum hefur umræðan um þessa lífsgjöf verið með öðrum hætti,“ skrifar Elliði og lætur fylgja með færslu Gísla Marteins. Þar vísar Gísli í frétt um að nýir flóðgarðar við Neskaupstað muni kosta 2,5 milljarða.
„Hefur einhver spurt hvort þetta fólk myndi kannski bara vilja þessar 10 milljónir á mann og flytja í bæinn?“ skrifaði Gísli.