Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson, þáttastjórnendur Elds og brennisteins, segja of mikið af gagnslausum gráðum í boði á Íslandi. Vinnumarkaðurinn og fjárframlög koma ekki til móts við það námsframlag á Íslandi.
Heiðar og Snæbjörn eru báðir menntaðir í leikhúsfræðum og luku námi frá Fræðum og framkvæmd í Listaháskólanum sem nú heitir Sviðshöfundabraut. Heiðar er einnig með meistaragráðu í leikstjórn frá East 15 leiklistarskólanum í London.
Heiðar og Snæbjörn ræddu á léttu nótunum um stöðu sviðslista á Íslandi í dag. Tengslanet skipti mestu máli og væri því hægt að læra margt af fyrirlesaranum og markaðsráðgjafanum Öldu Karen Hjaltalín að sögn Heiðars.
„Það er til svo mikið af alls konar námi,“ sagði Heiðar og benti á ekki væri nægt framboð af störfum á móti námsframboði á Íslandi.
„Það er verið að plata fólk inn í alls konar bull nám.“ Heiðar segir þetta dæmi um gríðarlegt ábyrgðarleysi í menntakerfinu. Snæbjörn tók undir með Heiðari og sagði það fáránlegt að bjóða upp á heila flóru af leiklistar- og sviðshöfundabrautum og setja ekki á sama tíma meiri pening í sviðslistir.
„Við erum að fara að sitja uppi með rosa mikið af fólki sem er að mennta sig í fögum sem er ekki innistæða fyrir á vinnumörkuðum,“ sagði Heiðar og benti á að slíkir einstaklingar væru alls ekki tilbúnir til að gefast upp á draumnum eftir mikið nám og væru því tilbúnir til að sætta sig við ansi kröpp kjör.
„Það er ekki of seint fyrir okkur að gerast iðnaðarmenn,“ sagði þá Snæbjörn. Eldur og brennisteinn er á dagskrá X977 og er hægt að hlusta á þáttinn í heild sinni hér.