Flugeldasala fyrir áramót var með besta móti að sögn Þórs Þosteinssonar, formanns Slysavarnafélagsins Landsbjargar, en nokkur ótti var á meðal þúsunda félagsmanna þess um að salan myndi dala verulega að þessu sinni.
Umræða síðustu mánuða og missera hefur verið flugeldasölunni mótdræg, en bent hefur verið á mikla mengun af völdum flugeldanna, jafnt í lofti og á jörðu niðri. En Íslendingar eru samir við sig og skjóta eldfærunum upp eins og fyrri árin - og virðist sem mikill meirihluti fólks taki á þessa fjáröflun björgunarsveitanna fram yfir talið um umhverfismál.
Og björgunarsveitirnar eiga raunar hug og hjörtu landsmanna, voru valdar manneskjur ársins 2019 á Rás 2 og Stöð 2 - og eru þegar byrjaðar á verkefnum nýs árs, jafnt á Suðurlandi, þar sem konu er leitað við Dyrhólaey og á Vesturlandi þar sem leit stendur enn yfir af erlendum göngumanni sem hefur verið týndur þar frá því fyrir áramót.