Blaðamaðurinn Eiríkur Jónsson vill að nýr útvarpsstjóri, Stefán Eiríksson, beiti gamla „lögregluvaldi sínu“ gagnvart Einari Þorsteinssyni umsjónarmanni Kastljóss, eftir viðtal hans við Ingu Sæland, formann flokks fólksins í gær. Eiríkur var allt annað en sáttur með Einar eftir viðtalið og sakaði hann um að tala niður til Ingu.
Inga Sæland var gestur Einars Þorsteinssonar í Kastljósi. Inga Sæland stóð í þeirri meiningu að ræða ætti að mestu stjórnmál og Flokk fólksins. Stærsti hluti þáttarins fór í að ræða skoðanir Ingu Sæland á hvernig hún telur að eigi að bregðast við yfirvofandi hættu sem stafar vegna kórónaveirunnar. Viðtalið hefur vakið mikla athygli og hefur Einar Þorsteinsson verið nokkuð gagnrýndur fyrir framgöngu sína í þættinum. Einn af þeim sem ávítar Einar er Eiríkur Jónsson.
„Undarleg framkoma Einars Þorsteinssonar umsjónarmanns Kastljóss ríkisins náði nýjum hæðum í samtali við Ingu Sæland formann Flokks fólksins á fimmtudagskvöldi. Talaði niður til hennar án afláts sem og hann aldrei gerir við formenn fjórflokksins,“ ritar Eiríkur í færslu á vefsíðu sinni eirikurjonsson.is.
„Nýr útvarpsstjóri verður að beita gömlu lögregluvaldi sínu til að stemma af þennan ljóta leik. En Inga sneri sér út úr þessu með leikni en óvíst hvort Einari tekst það þegar gamla löggan mætir með nýju útvarpskylfuna,“ bætir hann síðan við.