Kaupmaðurinn Bolli Kristinsson, gjarnan kenndan við 17, var gestur í Mannamáli nýverið. Þar afhjúpaði hann nokkur leyndarmála sinna frá farsælli, viðburðaríkri og umtalaðri athafnaævi.
Furðulegast er kannski að hlusta á hann lýsa því þegar hann gerðist einn helsti ráðgjafi Reykjavíkurlistans, eftir afhroð íhaldsins í borginni, en þá hringdi borgarstjórinn Ingibjörg Sólrún í hann og vildi fá hann, harðsvíraðan hægrimanninn, til að gefa sér ráð um uppbyggingu miðborgarinnar;
„Ég tala við Sólrúnu og hún býður mér að koma í miðborgarstjórn,“ sagði Bolli í þættinum.
Hún vildi að hans sögn ekki hafa eintóma já-menn í kringum sig og því þætti henni reyndur kaupmaður af Laugaveginum áhugaverður samstarfsmaður, þótt hann hefði allt aðrar stjórnmálaskoðanir en nýbakaður borgarstjórinn. Bolli sagði:
„Ég sem Sjálfstæðismaður var dálítið svekktur að hafa tapað borginni. Við áttum þessa borg Sjálfstæðismenn. Ég segi:
„Því miður Ingibjörg, ég hef engan tíma í þetta, þú verður að finna einhvern annan í það.“
Síðan lagði Bolli á.
„Korteri seinna hringir Vilhjálmur Egilsson alveg brjálaður, þingmaður og framkvæmdastjóri verslunarráðs á þeim tíma,“ sagði Bolli og bætti við að Vilhjálmur hefði verið ósáttur þar sem hann hefði mælt með honum í starfið. Bolli hugsaði sig um skamma stund og kvaðst ætla að taka starfið að sér. Síminn hringdi aftur og Bolli svaraði.
„Hún býður mér þá aftur að koma í þessa miðborgarstjórn. Þáði ég það með þökkum og væri virkilega gaman að fá að taka þátt í því með henni,“ útskýrði Bolli og það var eins og fyrra símtalið hefði aldrei átt sér stað.
„Ég mæti á fyrsta fund hjá Miðbæjarstjórn í fýlu að hafa tapað borginni en það tók hana, þessa fallegu konu með gott karma og yndislegt. Það tók hana ekki nema örfáa daga að bræða hjarta mitt.“
Bolli féll svo fyrir töfrum Ingibjargar og varð svo að segja ástfanginn af henni, viðurkennir hann fúslega
Sigmundur Ernir: „Segðu það bara, þú féllst fyrir henni?“
„Ég féll alveg, með ást. Ég elskaði þessa konu. Hún er alveg yndisleg,“ svaraði Bolli og sagði mikinn trúnað og vináttu hafa myndast á milli þeirra tveggja.