Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur tilkynnt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra að Efling muni ekki eiga frekari viðræður við samninganefnd borgarinnar umfram það sem lög krefjast. Stéttarfélagið Efling segir að samninganefnd Reykjavíkurborgar hafi dreift villandi upplýsingum til fjölmiðla af samningafundi hjá Ríkissáttasemjara um samningstilboð Eflingar sem lagt var fram 16. janúar síðastliðinn og hafi þannig brotið bæði trúnað og lög.
Samninganefnd Eflingar segir, í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér, krefjast þess að kjaraviðræður við borgina fari héðan af fram fyrir opnum tjöldum. Þannig sé brugðist eðlilega við trúnaðarbroti embættismanna borgarinnar og tryggt að rétt sé farið með kröfur Eflingar. Efling boðar því til opins samningafundar í Iðnó á miðvikudaginn 22. janúar næstkomandi, þar sem samninganefnd Eflingar mun kynna tilboð sitt til borgarinnar um kjarasamning sem á að gilda til loka árs 2022. Í bréfinu til borgarstjóra segir að Sólveig Anna og samninganefnd Eflingar að þau krefjist þess að Dagur B. Eggertsson, axli pólitíska ábyrgð á framgöngu samninganefndar borgarinnar, á þeirri stöðu sem upp er komin í viðræðum vegna þeirra.
Í tilboðinu sem kynnt verður á miðvikudag er fallist á sömu taxtahækkanir og samið var um á almennum vinnumarkaði í apríl síðastliðnum, auk þess sem Efling krefst þess að þeir starfsmenn borgarinnar sem séu með lægstu launin fái leiðréttingu á sínum launum. leiðréttingar á lág borgarinnar.