Lítið sem ekkert ferðaveður er á stórum hluta landsins í dag og eru gular og appelsínugular viðvaranir í gildi um allt land.
Gera má ráð fyrir suðvestanstormi og jafnvel ofsaveðri á heiðum Vestfjarða í dag en smám saman dregur þó úr veðurofsanum í kvöld. Samkvæmt veðurfræðingi á vef Veðurstofu Íslands verður skammt á milli stórra högga þar sem annar stormur boðar komu sína á morgun.
„Ört dýpkandi lægð er á hraðastími til okkar og í fyrramálið þegar hún er komin nær fer að hvessa og af austri og suðaustri með snjókomu, sem síðar fer í slyddu eða rigningu á Suður- og Austurlandi. Á Vestfjörðum gengur í norðaustan stórhríð seinni partinn á morgun og þegar er komin í gildi gul viðvörun til að vara við því,“ segir á veðurstofunni.
Búast má við víðtækum samgöngutruflunum og lokunum á vegum víðs vegar á landinu. Meðal vega sem þegar eru lokaðir eru Holtavörðuheiði, Vatnaleið, Brattabrekka, Þverárfjalli, Vatnsskarði og Öxnadalsheiði. Þá er hálka, éljagangur og slæmt skyggni á Hellisheiði og Þrengslunum. Vegagerðin hvetur fólk til þess að sýna varkárni og fylgjast vel með veðurspám.
Á höfuðborgarsvæðinu er gul viðvörun í gildi til klukkan 17 í dag og búist er við takmörkuðu eða lélegu skyggni með éljum, versnandi akstursskilyrðum og samgöngutruflunum. Guð viðvörun er einnig í gildi á Suðurlandi til klukkan 17 í dag og lokanir á vegum líklegar, einkum á Hellisheiði.