„Þegar fólk vill ekki búa hérna og upplifir sig sem einhvern útlaga þá er það auðvitað mjög leitt. Fari það fólk í friði,“ segir Daníel Jakobsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Ísafjarðarbæ, um flutninga Guðmundar Gunnarssonar, fyrrverandi bæjarstjóra, og fjölskyldu hans úr bænum, í samtali við Vísi.
Líkt og Hringbraut greindi frá í morgun tilkynnti Guðmundur um flutninga sína og fjölskyldu sinnar úr Ísafjarðarbæ en Guðmundur segist ekki lengur velkominn í samfélaginu og verið hrakinn þaðan. Guðmundur fór einnig hörðum orðum um Sjálfstæðisflokkinn í bænum og sagðist ekki vilja vera hluti af samfélagi þar sem „fyrirferðamiklar stjórnmálahreyfingar umbera fantabrögð freka kallsins og dreifa svo rógburði til að réttlæta þau“.
Aðspurður segist Daníel ekki vera vinur Guðmundar á Facebook en kvaðst eiga farsælan 30 ára stjórnmálaferil að baki. Hvort hann tengi við ummælin um frekan karl svaraði Daníel: „Ég er örugglega frekur karl.“
Að öðru leyti sé lítið við málið að bæta og að betra sé að ræða við Guðmund um hans upplifun. Eftirsjá verði af Guðmundi en ef fólk vilji fara þá fari það.