Stórleikarinn Chris Pratt sagði áhrifamikla sögu um líkfund á Skálafellsjökli í þætti Ellen Degeneres á dögunum, en leikarinn var staddur hér í sumar við tökur á kvikmyndinni The Tomorrow War.
„Nokkrum vikum áður en við hófum tökur á jöklinum þá fannst par sem hafði fallið niður sprungu og höfðu verið þar í 80 ár. Því miður, þá lifðu þau ekki af. Þau voru fullkomlega varðveitt í fjallgönguklæðnaði sínum frá árinu 1940 eða 1930,“ sagði Pratt í samtali við Ellen.
Lögreglan á Suðurlandi kannast hins vegar ekkert við þetta og segir söguna frekar líkjast kvikmyndahandriti.
„Ég kannast ekki við þetta mál en sagan er góð,“ segir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, í samtali við Fréttablaðið. Hann segist þurfa að glugga í sagnfræðibækur til að finna sambærilegt mál á Íslandi. Ekkert sambærilegt mál hafi komið upp á síðustu árum á Íslandi og ekki á þeim slóðum þar sem Chris Pratt var við tökur.
Þá kannast Jón Garðar Bjarnason, lögreglumaður á Höfn í Hornafirði, ekki heldur við líkfundinn og bendir á að slík tíðindi hefðu líklega ekki farið fram hjá fólki.
„Mér er ekki kunnugt um þetta. Þetta hefði ekki farið fram hjá okkur ef einhver hefði fundið lík og tilkynnt um það. Það hlýtur að vera að slá saman einhvers staðar,“ segir hann.