Hildur Bjarnadóttir, byggingarfulltrúi í Hafnarfirði, hefur tvisvar sinnum skilað inn teikningum vegna breytinga á Karmelklaustrinu við Ölduslóð 37 í bænum. Frá þessu er greint á vef Fjarðarfrétta en skýr ákvæði eru í lögum um mannvirki sem gera byggingarfulltrúum og starfsmönnum hans óheimilt að vinna nokkuð það starf sem kann að koma til afgreiðslu í umdæmi hans.
Í frétt miðilsins er vitnað í fundargerð frá afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 5. desember sem Hildur ritaði. Þar kemur fram að byggingarfulltrúi hafi samþykkt erindi frá Karmelítaklaustrinu sem hafi 2. desember sótt um byggingarleyfi fyrir skýli við inngang og lyftu.
Þá segir að ofan við dagskrárliðinn í fundargerðinni standi að byggingarfulltrúi hafi vikið af fundi við afgreiðslu þessa máls. Ekki sé getið þess hver hafi gert viðkomandi teikningar né heldur hver hafi verið staðgengill byggingarfulltrúa hafi hann vikið af fundi.
Á fundinum sátu þau Hildur Bjarnadóttir, Þormóður Sveinsson, skipulagsfulltrúi, Berglind Guðmundsdóttir, arkitekt auk Guðrúnar Guðmundsdóttur, verkefnastjóra. Öll eru þau starfsmenn á skrifstofu umhverfis-og skipulagssviðs.
Þá vekur það athygli að þegar teikningin er skoðuð er hún ekki aðeins gerð og undirrituð af Hildi Bjarnadóttur, arkitekt, heldur einnig stimpluð og þar með samþykkt af byggingarfulltrúa og er það samþykki veitt af hinni sömu Hildi.
Í umfjöllun miðilsins segir að þetta sé ekki fyrsta skiptið sem slíkt hafi átt sér stað en auk tveggja teikninganna frá Ölduslóð 37 er að finna teikningar fyrir hús að Traðarbergi. Hún er einnig gerð af Hildi í janúar 2016, eftir að hún hafði tekið við sem byggingarfulltrúi. Auk þess má finna teikningar af húsi við Álfaskeið sem hún mun hafa unnið að áður en hún var ráðin. Hluti teikninganna er dagsettur í mánuðinum áður en hún tók til starfa sem byggingarfulltrúi.
Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri, segir í svörum til miðilsins að Hildur hafi verið að klára tvö verk í Hafnarfirði þegar hún hafi hafið störf. Hún hafi fengið heimild til að klára þau verk.