Bára afhendir siðanefnd alþingis hljóðupptökurnar

Bára Halldórsdóttir hefur afhent siðanefnd Alþingis upptökurnar sem hún gerði á Klaustur Bar, þar sem hún hljóðritaði samskipti sex þingmanna þann 20. nóvember síðastliðinn.

Forstöðumaður lagaskrifstofu Alþingis hafði samband við Stundina, DV og Kvennablaðið í síðustu viku og óskaði eftir gögnunum fyrir hönd þingforseta. Stundin greindi Báru frá beiðninni og ákvað hún nú um helgina, eftir að hafa stigið fram undir sínu rétta nafni í viðtali við Stundina, að afhenda hljóðupptökurnar til að siðanefndin gæti byggt vinnu sína á frumgögnum.

Forsætisnefnd Alþingis tók hátterni þingmannanna sex til umfjöllunar á fundi sínum þann 3. desember og samþykkti að leita álits hinnar ráðgefandi siðanefndar á grundvelli 16. gr. siðareglna alþingismanna. Í bókun forsætisnefndar er þingforseta og skrifstofu Alþingis falið að „ganga svo frá málum næstu daga að erindið fái sem skjótasta meðferð í siðanefndinni þannig að forsætisnefndin geti tekið endanlega afstöðu til málsins“. 

Nánar á

https://stundin.is/grein/8070/