Banaslys á reykjanesbraut við straumsvík í gærkvöldi

Um tuttugu mínútur yfir níu í gærkvöldi varð alvarlegt umferðarslys á Reykjanesbraut við Straumsvík samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

RÚV greindi frá því að um banaslys væri að ræða þegar tvær bifreiðar sem komu úr gagnstæðri átt rákust saman og lést maður í annari bifreiðinni.  Að sögn lögreglu lauk starfi á vettvangi laust fyrir miðnætti.