Auglýst eftir umsóknum um stöðu leikhússtjóra borgarleikhússins með árs fyrirvara

Stjórn Leikfélags Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um stöðu leikhússtjóra Borgarleikhússins en stefnt er að því að viðkomandi hefji störf við undirbúning leikársins 2021-2022 í ársbyrjun 2021 og taki svo formlega við stjórn leikhússins í júlí árið 2021.

Stjórn Leikfélagsins vill vanda til ráðningarferils leikhússtjóra til þess að tryggja sem öflugastan hóp umsækjenda og í fréttatilkynningu frá Borgarleikhúsinu segir að ráðstöfunin gefi nýjum leikhússtjóra færi á því að koma fyrr að vali verkefna, ráðningu leikara og leikstjóra.

Mikilvægt að laða að hæfileikaríkt sviðslistafólk

Einnig telur stjórnin að með auknum fyrirvara á ráðningu auðveldi það umsækjendum sem þegar eru í öðrum verkefnum að skipuleggja framíð sína.

„Borgarleikhúsið er þekkt fyrir að vera framsækið leikhús og hefur gengið afar vel undanfarin ár undir forystu Kristínar Eysteinsdóttur.  Seinna ráðningartímabil hennar rennur út í júlí 2021, en stjórn LR vill undirbúa ráðningu eftirmanns hennar tímanlega. Stjórnin telur mikilvægt að laða að hæfileikaríkt sviðslistafólk og fara ótroðnar slóðir við ráðningu stjórnenda, ekki síst í ljósi þess hve starfsumhverfi þeirra hefur breyst að undanförnu með fjölgun tækifæra á alþjóðavettvangi,“ segir Eggert Benedikt Guðmundsson, formaður stjórnar Leikfélags Reykjavíkur í fréttatilkynningu.

Kristín Eysteinsdóttir, núverandi leikhússtjóri Borgarleikhússins tekur undir orð Eggerts og telur hún það mikið heillaskref að auglýsa stöðuna með svo góðum fyrirvara.

„Það ber vott um faglega nálgun stjórnar enda eru sambærilegar stöður erlendis auglýstar að minnsta kosti ári áður en viðkomandi aðili tekur við.  Þetta er gert til að nýr leikhússtjóri fái tækifæri til að undirbúa vel komu sína í leikhúsið. Ég mun leggja mig alla fram við að styðja eftirmann minn í þeim undirbúningi, enda er það mér mikið hjartans mál að leikhússtjóraskiptin séu fagleg og vel að þeim staðið. Með þessu móti getur nýr leikhússtjóri frá fyrsta degi sett skýran svip á starfsemi leikhússins,“ segir hún.

Starf leikhússtjóra Borgaleikhússins verður auglýst til umsóknar 16. janúar nk. og rennur umsóknarfrestur út tveimur vikum síðar eða 30. janúar 2020 en auglýsinguna má finna á vef Borgarleikhússins.