Áslaug arna segir dómara við landsrétt löglega skipaða – helga vala bendir á að sigríður hafi brotið stjórnsýslulög

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, nýskipaður dómsmálaráðherra, segir að Hæstiréttur hafi komist að þeirri niðurstöðu að dómarar sem forveri hennar Sigríður Á. Andersen skipaði við Landsrétt séu löglega skipaðir. Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og lögmaður, segir það útúrsnúning, enda hafi Hæstiréttur úrskurðað að Sigríður hafi gerst brotleg við stjórnsýslulög þegar hún skipaði fjóra dómara sem voru ekki metnir hæfastir við Landsrétt.

Í dómi Hæstaréttar frá árinu 2017 um skipan Sigríðar segir: „Var málsmeðferð ráðherra að þessu leyti því andstæð 10. gr. stjórnsýslulaga.“

Sem kunnugt er komst Mannréttindadómstóll Evrópu svo að þeirri niðurstöðu í mars á þessu ári að Sigríður hafi brotið  gegn 6. grein mannréttindasátt­mála Evrópu með skipan sinni. Í Landsréttarmálinu svokallaða höfðaði Guð­mundur Andri Ást­ráðs­son mál gegn ríkinu og fór með fyrir Mann­réttinda­dóm­stól Evrópu þar sem hann taldi einn af dómurunum fjórum vera vanhæfan í máli sínu þar sem hann var dæmdur í 17 mánaða fangelsi fyrir ýmis brot.

Dómi MDE var áfrýjað til efri deildar dómstólsins og kom það í ljós á mánudag að efri deildin mun taka málið fyrir. Kvaðst Áslaug Arna í viðtali við RÚV fagna þeirri ákvörðun. Réttaróvissan sem hefur fylgt málinu hefur verið gagnrýnd, enda dómararnir fjórir verið óstarfhæfir á launum síðan MDE komst að niðurstöðu sinni. Svar Áslaugar Örnu við spurningu um hvort ekki væri þörf á að eyða þessari óvissu hafa vakið athygli. Hún sagði:

 „Dómarar dæma sjálfir um sitt hæfi, og það er kannski eðlilegt að þeir fái tækifæri til að meta stöðuna í ljósi þessarar niðurstöðu. Hæstiréttur hefur auðvitað komist að þeirri niðurstöðu að þeir eru löglega skipaðir, síðan er það auðvitað bara praktískt úrlausnarefni hvernig best má tryggja starfsemi Landsréttar.“

Útúrsnúningar sjálfstæðismanna

Í samtali við Eyjuna segir Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og lögmaður, að það væri einfaldlega línan hjá Sjálfstæðisflokknum að snúa út úr dómi Hæstaréttar með lagatæknilegum smáatriðum og gera þau að aðalatriði málsins.

„Þetta er frasi sem sjálfstæðismenn hafa haldið uppi síðan MDE kvað upp sinn dóm. Hæstiréttur komst auðvitað að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið farið að lögum við skipan dómara, en beittu síðan lögskýringu sem alltaf er brúkuð í starfsmannamálum, sem er sú að sá sem fer í mál vegna skipunar eða ráðningar í  starf, hann gengur ekki í starfið í staðinn. Þetta er bara svona starfsmannaréttur 101, þú færð bætur þó það sé viðurkennt að ekki hafi verið rétt staðið að ráðningunni. Og þarna segir dómurinn að þrátt fyrir að Sigríður hafi brotið lög við val sitt, þá hafi eftirleikurinn verið í samræmi við lög, sem er síðan álitamál og verður gaman að sjá hvernig yfirdeild MDE tekur á,“ segir hún.

Hún segir Hæstirétt tala um í dómi sínum varðandi meðferð Alþingis að þar sem forsetinn endi á því að stimpla málið og samþykkja, þar sem það hafi farið sína réttu boðleið leið í kerfinu, sé skipanin lögum samkvæmt. „En það er auðvitað bara útúrsnúningur að segja að Hæstiréttur hafi komist að þeirri niðurstöðu að dómararnir séu löglega skipaðir, enda skipanin sögð fara gegn lögum í dómnum.“

Helga Vala bætir því við að henni þyki Áslaug Arna skásti kosturinn af þeim sjálfstæðismönnum sem komu til greina sem nýr dómsmálaráðherra, en að þær séu þó engar skoðanasystur.

„Við Áslaug vorum saman í viðtali á sínum tíma þegar niðurstaða MDE lá fyrir. Þar kom alveg í ljós hvað við vorum algerlega ósammála. Hún fór beint í lagatúlkun Sjálfstæðisflokksins, að erlendur dómstóll hefði ekkert vægi hér og svona, engin auðmýkt. Það er lína Sjálfstæðisflokksins. Og ég hef enga trú á því að hún muni ekki í einu og öllu fara að línu Sjálfstæðisflokksins í því sem  hún er að gera. Ég skrifaði í minni færslu þegar ég óskaði henni til hamingju með ráðherraembættið, að hún væri skásti kosturinn af þeim sem nefndir voru. En viðbrögð hennar við útlendingamálum og dómi MDE fylla mig ekki bjartsýni á að þar fari sjálfstæður hugur,“ segir hún í samtali við Eyjuna.