Áslaug arna: „almenningur á að geta borið mikið traust til lögreglunnar“

„Lögregluráð hefur nú tekið til starfa. Í ráðinu eiga sæti allir lögreglustjórar landsins auk ríkislögreglustjóra sem verður formaður þess. Tilgangur ráðsins er að auka samvinnu lögregluembættanna, gera störf lögreglunnar skilvirkari, draga úr tvíverknaði og nýta betur þá fjármuni sem lögreglan fær á fjárlögum hverju sinni. Nýr ríkislögreglustjóri mun leiða þessa vinnu í samráði við aðra lögreglustjóra í landinu.“

Þetta segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, í pistli sínum í Morgunblaðinu. Áslaug segir deilur hafa verið harðar innan lögreglunnar þegar hún tók við embætti og að hún hafi þá efnt til funda með öllum hagsmunaaðilum til þess að finna leiðir til lausnar.

„Áhersla mín var sú að það væri ekkert athugavert við heilbrigð skoðanaskipti en nauðsynlegt væri að rökræða málin af yfirvegun og málefnalega. Þá kom í ljós samstaða um ákveðin grunnatriði og þar á meðal um nauðsyn formlegs samráðsvettvangs; lögregluráðsins sem nú hefur tekið til starfa. Með stofnun þess eflist samvinna lögreglustjóra landsins og dregið er úr hættunni á hvers kyns hagsmunaárekstrum,“ segir hún.

Traust er forsenda árangurs í störfum lögreglunnar

Áslaug segir ætlunina vera þá að embætti ríkislögreglustjóra verði öflugt samræmingar- og þjónustu afl fyrir lögregluna í heild sem leiði stefnumörkun og veiti öðrum lögreglustjórum aðstoð og stuðning.

„Lögreglan er ein af mikilvægustu stofnunum þjóðfélagsins. Henni ber að tryggja öryggi almennings og halda uppi lögum og reglu í landinu. Þetta er ekki lítið hlutverk. Almenningur á að geta borið mikið traust til lögreglunnar. Þetta traust byggist upp á löngum tíma og hvílir á orðum, athöfnum og allri framgöngu lögreglunnar. Traust er forsenda árangurs í störfum hennar,“ segir Áslaug.

Hún segir framtíðarsýn sína fyrir lögregluna vera að hún sé öflug, fagleg, vel tækjum búin og áreiðanleg. Þá þurfi að byggja upp öflugt og óháð eftirlit með störfum hennar.

„Lögreglan á að vera fær um að takast á við sífellt flóknari brotastarfsemi og búa yfir nægilegum styrk til að bregðast við nýjum áskorunum. Borgararnir eiga að geta treyst á færni og þekkingu lögreglumanna við fjölbreyttar og erfiðar aðstæður í raunheimum sem og í stafrænum heimi fjölþjóðlegrar brotastarfsemi,“ segir hún og bætir því við að skipulag lögreglunnar eigi að vera með þeim hætti að það styðji þessi markmið og stuðli að auknu öryggi og þjónustu við almenning.