Ásdís rán leiðréttir misskilninginn: „ég er blásaklaus og kannast ekki við þetta!“

Ásdís Rán Gunnarsdóttir, athafnakona og ein þekktasta fyrirsæta landsins, uppgötvaði það í dag að nafn hennar og mynd væri að finna á stefnumótaforritinu Tinder. Ásdís segir á Facebook:

„Það hefur einhver óprúttinn aðili verið að stríða mér og setti mig á Tinder í dag sem hefur valdið töluverðu fjaðrafoki í kringum mig.“

Ásdís vildi ekki tjá sig frekar um málið þegar eftir því var leitað en hún greinir frá því á Facebook að henni hafi borist ansi mörg skilaboð í kjölfarið. Einnig hefur Ásdís áhyggjur hvað viðkomandi sé mögulega að segja við aðra á stefnumótaforritinu í hennar nafni.

„Ég vildi bara leiðrétta málið og segja að ég er blásaklaus og kannast ekki við þetta!“

Hefur færslan vakið nokkra athygli en þannig segir hinn ástsæli söngvari, Friðrik Ómar Hjörleifsson: „Andsk. Nú skil ég hvers vegna ég sit einn á Snaps núna!“