Arnhildur Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 20. febrúar 1931. Hún lést á líknardeildinni í Kópavogi 26. desember 2019.
Arnhildur giftist Sigurði Kjartanssyni frá Höfn í Hornafirði og saman eignuðust þau þrjú börn. Þau byggðu sér einbýlishús á Þinghólsbraut 34 sem nú er Þinghólsbraut 40. Í kjallara hússins var Sigurður fyrstu árin með raftækjavinnustofuna Rafgeisla, sem hann stofnaði ásamt vini sínum. Arnhildur sá um börnin og heimilið. Hún hafði mikinn áhuga á leiklist og lék í nokkur ár hjá Leikfélagi Kópavogs sem var áhugamannafélag.
Þegar börnin þrjú uxu úr grasi hóf Arnhildur nám í Leiklistarskóla Reykjavíkur (LR) hjá Sveini Einarssyni. Hún útskrifaðist þaðan árið 1967. Arnhildur vann síðan sem leikkona, bæði á sviði, í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum.
Hún lék í kvikmyndinni Paradísarheimt 1980, Húsinu 1982, Dagvaktinni 2008, Ófærð 2018 og í stuttmyndinni Nema hvað 2019. Auk þess vann hún við að leikstýra úti á landi og hélt námskeið í framsögn og leiklist í skólum.
Sigurður Þorsteinsson, tengdasonur Arnhildar, segir í minningarorðum sínum í Morgunblaðinu í dag að líf Arnhildar hafi snúist um fjölskylduna.
„Leiklist var ástríða Arnhildar. Þær voru ófáar sýningarnar sem hún setti upp fyrir hin ýmsu leikfélög. Mörg voru hlutverkin á leiksviði, í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, nú síðast í Ófærð II.
Það eru rúmlega 40 ár frá því að ég var boðinn velkominn á heimili Arnhildar og Sigurðar á Þinghólsbrautinni. Þau tóku mér einstaklega vel. Þau hafa stutt fjölskyldu mína af heilindum. Og hvað getur maður beðið um meira.“
Útför Arnhildar fór fram frá Kópavogskirkju í dag, 10. janúar 2020, klukkan 15.