Anton keppir fyrir hönd íslands á ólympíuleikum ungkokka í indlandi - „ég hef mikla trú á drengnum”

Í næstu viku fara fram Ólympíuleikar ungkokka í Indlandi og mun Ísland eiga keppanda þar. Alls munu 32 þjóðir taka þátt í keppninni hvaðanæva frá í heiminum. Síðast þegar Ísland keppti hreppti Ísland 6. sætið. Til mikils er að vinna, því verðlaunafé fyrir sigur í þessari sterku keppni er um 1,2 milljónir króna. Keppnin fer fram í 6 borgum víðs vegar um Indland og mun Ísland keppa í borgunum Deli, Goa og Kolkata.

Keppandinn sem um ræðir heitir Anton Elí Ingason og er frá Akranesi. Hann hefur verið aðstoðarmaður í Boucus O´dor þegar Bjarni Siguróli keppti fyrir Íslands hönd. Einnig hefur Anton starfað á sumum af bestu veitingahúsum Íslands.

Anton hefur æft stíft fyrir keppnina í Menntaskóla Kópavogs undanfarnar vikur. Í æfingunum skiptir tímasetning öllu segir Anton, því keppendum er úthlutað tíma í verkefnin, aðeins einn og hálfur tími á hverjum keppnisdegi og eru verkefnin mjög margbreytileg. Allt frá úrbeiningu á kjúklingi og elda aðalrétt úr honum yfir í bakstur á perueftirrétti eða grænmetisrétti úr framandi hráefni.

Aðspurður segir Anton að hann hlakki mest til að vinna með allt það framandi hráefni sem verður skaffað, margt nýtt sem hann hefur ekki unnið með áður.

Þjálfarinn hans í keppninni er Hinrik Carl Ellertsson, fyrrverandi rekstrarstjóri á veitingastaðnum Dill, en hann starfar í dag sem kennari við Menntaskólann í Kópavogi. „Ég hef mikla trú á drengnum, hann hefur staðið sig vel í undirbúningi og er mikil tilhlökkun í hópnum,” segir Hinrik um Anton.