Maðurinn sem leitað hefur verið að í Heydal á Snæfellsnesi frá 30. desember heitir Andris Kalvans og er fæddur árið 1962. Hann kemur frá Lettlandi en er búsettur í Reykjavík. Leit verður framhaldið í dag en lögreglan á Vesturlandi biður þá sem telja sig hafa vitneskju um ferðir Andris um að hafa samband símleiðis eða á Facebook.
Ekkert hefur heyrst frá Kalvans síðan fyrir helgi. Hann er sagður vanur fjallgöngumaður en litlar sem engar upplýsingar liggja fyrir um ferðir hans, né hvernig hann var búinn.
Stærri leit er fyrirhuguð að Kalvans á morgun.