Andrés gagnrýnir helga seljan og eirík guðmundsson fyrir færslur á samfélagsmiðlum

Andrés Magnússon, sem situr í ritstjórn Viðskiptablaðsins, segir tvo starfsmenn RÚV, þá Helga Seljan og Eirík Guðmundsson, vera dæmi um fjölmiðlamenn sem fara gjarnan út af sporinu í umfjöllun sinni. Þetta segir Andrés í nýjasta fjölmiðlapistli sínum sem birtist í Viðskiptablaðinu á fimmtudaginn.

„Margir innlendir fjölmiðlamenn taka dyggan þátt í þjarkinu á félagsmiðlum, oftast sennilega um fréttir. Flestir gera þeir það af þeirri hófsemd, háttvísi og heiðarleika, sem ætlast má til. En það eru líka dæmi um að menn sleppi sér í stöku hitamálum. Nú eða hin vanstillta færsla Eiríks Guðmundssonar á RÚV um að ef einhver sjálfstæðismaður yrði ráðinn útvarpsstjóri þá yrði bylting. „Það er ekki bara hótun, heldur loforð.“ — Sem sagt ofbeldi heitið nema einhver pólitískt þóknanlegur Eiríki verður ráðinn yfirmaður hins öldungis ópólitíska ríkisútvarps!“ segir Andrés í pistlinum.

„Þetta var auðvitað galið og raunar furðulegt að ekkert hafi frekar heyrst frá RÚV um þessa ofbeldishótun. Ekki þó síður sérkennilegt í ljósi þess að um árið þurfti að grípa til sérstakra ráðstafana eftir að Eiríkur misnotaði útvarpsþáttinn Víðsjá — þátt fyrir áhugafólk um listir og menningu —  til þess að flytja rammpólitíska pistla um eigin skoðanir.“

„Samherjamálið er mönnum enn í fersku minni og þar hefur framganga Helga Seljan vakið mesta athygli, ef ekki aðdáun,\" heldur hann svo áfram. „Hins vegar má einmitt setja spurningamerki við framgöngu hans á félagsmiðlum í framhaldinu. Þar er hann vart í hlutverki fréttamanns lengur, heldur hefur hann stillt sér upp andspænis forsvarsmönnum Samherja, svona nánast eins og hann eigi aðild að málinu. Það gengur ekki.“

„Nú hafa Samherjamenn deilt á eitt og annað í fréttaflutningnum og sjálfsagt mismikil efni í, án þess að hér verði nokkur efnisleg afstaða tekin til þess alls. En hafi fréttunum verið í einhverju ábótavant, nú þá er bara að leiðrétta það, en hitt má rökstyðja og sjálfsagt að Ríkisútvarpið árétti það. En það á ekki að gerast í persónulegum færslum Helga á félagsmiðlum, hvað þá með því að hann sé að senda Samherjamönnum tóninn. (Í því samhengi skiptir auðvitað einnig máli þáttur Helga í upphafi Seðlabankamála Samherja.)“ segir Andrés þá.

„Það er alls ekki útilokað að fleiri fréttir kunni að felast í Samherjamálinu, flókið og langvinnt sem það var, en hvernig getur almenningur treyst Helga til þess að fjalla um það af sanngirni, þegar hann stendur nú uppi sem sérstakur andstæðingur Samherjamanna í opinberri umræðu? Þátttakandi en ekki fréttamaður. Sem einnig veikir trúverðugleika RÚV í málinu. Algerlega að óþörfu,“ segir hann að lokum um Helga.