Ágúst ólafur: „ríkisstjórnarflokkunum finnst augljóslega eðlilegt að reykingafólk eigi að greiða hærra gjald en útgerðarmenn“

„Í gærkvöldi kynnti ríkisstjórnin breytingartillögur sínar á fjárlagafrumvarpinu og er ein þeirra sérstaklega fréttnæm. Þá tillögu vilja sumir í stjórnarflokkunum örugglega tala sem minnst um og kannski væri því rétt að deila þessu sem víðast.“

Þetta segir Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarnar. Hann segir að seint í gærkvöldi hafi ríkisstjórnin lagt til að veiðileyfagjöldin yrðu lækkuð talsvert meira en áður stóð til. Segir hann að með þessari lækkun sé búið að lækka veiðileyfagjöldin um helming, úr 11,2 milljörðum króna í 5 milljarða króna.

„Því seint í gærkvöldi lagði ríkisstjórnin til að veiðileyfagjöldin verði lækkuð talsvert meira en til stóð fyrir eingöngu tveimur mánuðum þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram. Ríkisstjórnin vill nú lækka veiðileyfagjöldin um 2 milljarða kr til viðbótar en þá mun veiðileyfagjaldið hafa lækkað um meira en helming síðan þessi ríkisstjórn tók við völdum og farið úr 11,2 milljörðum og í 5 milljarða kr.“

Þá segir Ágúst að veiðileyfagjöldið dekki ekki einu sinni þann kostnað sem ríkið þarf að greiða til að þjónusta sjávarútveginn.

„Og það sem meira er, þá verður veiðileyfagjaldið orðið svo lágt að það dekkar ekki einu sinni þann kostnað sem skattgreiðendur verða fyrir vegna þjónustu hins opinbera gagnvart atvinnugreininni. Samkvæmt lögum eiga veiðileyfagjöld m.a. að mæta þeim kostnaði, sem vill svo til að er 5,1 milljarður og er því hærri en það sem ríkisstjórnin leggur nú til að veiðileyfagjöldin verði. Gjaldið sem útgerðarmenn þurfa að greiða fyrir aðgang að einum bestu fiskimiðum jarðar, sem þeir eiga ekki heldur þjóðin samkvæmt lögum, er því orðið að engu. Og í raun eiga skattgreiðendur nú að borga með stórútgerðinni.“

Ágúst bendir einnig á að reykingarfólk á Íslandi greiði hærra gjald til ríkisins en sjávarútvegurinn allur í heild.

„Ríkisstjórnarflokkunum finnst augljóslega eðlilegt að reykingafólk (8% af þjóðinni) eigi að greiða hærra gjald en útgerðarmenn því með þessari breytingu verður veiðileyfagjaldið orðið lægra en tóbaksgjaldið. Þetta allt saman er sérstaklega athyglisvert í ljósi þess að frá árinu 2010 hafa arðgreiðslur í prívat-vasa útgerðarmanna verið um 100 milljarðar kr. Og þá hefur hagur sjávarútvegsins (aukið eigið fé og arðgreiðslur) vænkast um 450 milljarða króna á einum áratug. Hagnaður eins manns, Þorsteins í Samherja, í fyrra var hærri en öll fyrirhuguð veiðileyfagjöld ríkisstjórnar VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.“

Að lokum segir hann að 1% landsmanna, sem stór hluti af séu stórútgerðarmenn, eigi meiri hreinar eignir en 80% landsmanna.

„Því til viðbótar sjáum við að 1% landsmanna á meiri hreinar eignir en 80% landsmanna og yfir 40% af nýjum auð sem hefur myndast á Íslandi síðan 2010 hefur endað hjá ríkustu 10% landsmanna. Stór hluti af þessu fólki eru stórútgerðarmenn. Á sama tíma hafa verið boðaðar í sama fjárlagafrumvarpi „umfangsmiklar aðhaldsaðgerðir á Landspítalanum“, niðurskurð hjá framhaldsskólum og lækkun fjárframlaga til réttindagæslu fatlaða, hjálpartækja og til endurhæfingarþjónustu, verndaðra vinnustaða öryrkja, jafnréttissjóðs, kvikmyndagerðar og lækkun til almennrar löggæslu svo fátt eitt sé nefnt.“