13 ára dóttir koby bryant látin

Greint var frá þeim sorglegu tíðindum að Kobe Bryant einn besti leikmaður í sögu NBA-deildarinnar hefði látist í þyrluslysi í Kaliforníu í dag. Nú er komið í ljós að þrettán ára dóttir hans, Gianna var einnig um borð og lést í þessu hræðilega slysi. Er Bandaríska þjóðin slegin sem og körfuboltaaðdáendur um víða veröld.

Bryant sem hóf NBA feril sinn árið 1996 og lagði síðan skóna á hilluna árið 2016 er fjórði stigahæsti leikmaður í sögu deildarinnar. Hann lék allan sinn feril með Los Angeles Lakers. Hann varð fimm sinnum NBA-meistari með liði sínu.

Á vef Fréttablaðsins kemur fram Bryant var eins 41 árs gamall en hann skilur eftir sig eiginkonu, Vanessu Bryant, og þrjár dætur þær Nataliu, Biancu og Capri sem er sjö mánaða gömul.