Baráttumaðurinn Wilhelm Wessmann segir að það sé lítið í fjárlögum ríkisstjórnarinnar sem geti glatt eldri borgara.
„Það eina sem ég hef fundið er að hækka eigi frítekjumark atvinnutekna í 200 þúsund,“ segir hann í færslu á Fésbókinni.
„Þegar frítekjumark atvinnutekna hefur verið hækkað í 200 þúsund (sem gagnast ca 1.500 manns af um 37 þús ellilífeyristökum), þá geta þeir heppnu haft 225 þús. kr. tekjur á mánuði án þess að greiðslur TR skerðist, meðan allur fjöldinn fær á sig skerðingu um leið og tekjurnar skríða yfir 25 þúsundin.“
Wilhelm er harðorður:
„Þetta kallast á mannamáli svívirðileg mismunun.“
Hann segir að það styttist í að dómur falli í máli Gráa hersins gegn ríkinu vegna skerðinga Tryggingastofnunar.
„Allar götur frá 2012 þegar ég hóf baráttuna fyrir málsókn á hendur ríkisins vegna skerðinga hef ég sannfærst betur og betur um að eina leiðin til að bæta kjör eldri borgara er dómstólaleiðin. Ríkið vill ekki semja við eldri borgara,“ segir hann. Vill hann að allir sjái þessi mikilvægu skilaboð og segir: „DEILIÐ-DEILIÐ-DEILIÐ.“