Vítalía Lazareva, sem steig fram fyrr á þessu ári og lýsti ofbeldi sem hún varð fyrir, furðar sig á fjölmiðlamanninum Eiríki Jónssyni. Vítalíu var líkt við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, á vef Eiríks í gær og spurt hvort hún væri frænka hans.
Um var að ræða færslu á vef Eiríks undir liðnum „Póstur dagsins“ en þar sagði orðrétt:
„Hefurðu tekið eftir hvað Vítalía er lík Pútín? Ef þú hefur ekkert betra að gera, þá gæti verið gaman að sjá myndir af þeim hlið við hlið. Er Vítalía kannski frænka Pútíns? Eða dóttir?“
Vart þarf að taka fram að Vladimír Pútín er ekki í uppáhaldi hjá mörgum vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Vítalíu var ekki hlátur í huga þegar hún sá færsluna á vef Eiríks ef marka má færslu hennar á Twitter í gærkvöldi.
„Á ég að hlægja núna? Ég þoli mikið en þetta er kannski full svona já mikið,“ sagði hún.
Fylgjendur Vítalíu tóku undir gagnrýni hennar, skiljanlega, og gagnrýndu framsetninguna á vef Eiríks. „Djöfull er þetta ógeðslegt. Orðlaus!,“ segir til dæmis einn.
Á ég að hlægja núna?
— Vítalía Lazareva (@LazarevaVitalia) May 16, 2022
Ég þoli mikið en þetta er kannski full svona já mikið pic.twitter.com/3YHvOhVVCL